fbpx

Rattan - opinn reyrvefur fyrir stóla 60x100 cm

10.950 kr.

Rattan – opinn reyrvefur fyrir stóla 60×100 cm

Reyr (rattan) er efni unnið úr mörgum tegundum pálmatrjáa sem vaxa í hitabelti Afríku, Asíu og Eyjaálfu. Reyr er níðsterkur og hefur í gegnum tíðina verið mest notaður í körfur og fléttaður í vef fyrir stóla. Opinn reyrvefur er misstórgerður, þessi er “opinn” eða með um eins sentimetravíðum götum. Reyrvefinn má nota á ýmsa vegu, í raun ræður hugmyndaflugið för. Sem dæmi má nefna í skápahurðir, skilrúm, lampaskerma, hillur, bakka og fleira. Þessi útgáfa af reyr er sú sterkasta sem hægt er að fá og hentar því vel í stólsetur.

Reyrinn er oftast einfaldur í uppsetningu. Mikilvægast er að leggja hann í bleyti, í a.m.k. 2 klst. Þá mýkist hann og slaknar aðeins og verður auðveldur að meðhöndla. Reyrinn er síðan heftaður og strekktur yfir flötinn eða límdur í stólsetur. Vefurinn gæti virst svolítið ójafn í fyrstu en hann strekkist þegar hann þornar og jafnast út. Hér eru myndbönd sem sýna stólaviðgerðir:

Tvenns konar stólar:

  1. Nýtt rattan límt niður í stólsetu með reynstönglum
  2. Nýtt rattan þrætt niður í setu

Þessi reyrvefur (rattan) er seldur í metramáli hér í vefverslun. Breidd er 60 cm. Hægt er að kaupa eftir nákvæmu máli, t.d. 1.8 m en þá skal panta í s. 517 0404 eða senda póst á serefni@serefni.is

10.950 kr.

11.54 til á lager.

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: TH-1/2-60-S Vöruflokkar: ,

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping